25 Janúar 2010 12:00

Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrír voru stöðvaðir á föstudag, fimm á laugardag og þrír á sunnudag. Níu voru teknir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 16-50 ára og fjórar konur, 17-30 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptir ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.