5 Október 2009 12:00

Í mánaðarskýrslu (ágúst) umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að umferðarslysum fækkar frá fyrra ári um 26% fyrstu átta mánuði ársins. Sambærilegar tölur frá tryggingafélögunum sýna 19% fækkun. Skráðum umferðaróhöppum fækkar á sama tíma um 52% milli ára. Þá fækkun má að hluta rekja til samkomulags tryggingafélaga og Neyðarlínu í endaðan júní 2008 um aðstoð á vettvangi til handa þeim er lenda í minniháttar umferðaróhöppum. Lögreglan hætti þá að mestu að sinna slíkum óhöppum og skrá. Tölur tryggingafélaga sýna á sama tíma 24% fækkun.

Umferðaróhöppum þar sem ölvun kemur við sögu fækkar milli ára úr 128 árið 2008 í 94. Það gefur vísbendingar um fækkun slíkra brota almennt. Óhöpp tengd fíkniefnaneyslu fjölgar hinsvegar úr 22 í 33 á sama tímabili. Kærum vegna slíkra brota fjölgar jafnframt umtalsvert. Það er áhyggjuefni.

Mánaðarskýrslu (ágúst) umferðardeildar má lesa með því að smella hér. Tekið skal fram að allar tölur í henni eru bráðabirgðatölur.