9 Maí 2025 15:26
Þriðji samráðsfundur Öruggara Norðurlands vestra var haldinn í Ljósheimum í Skagafirði í dag. Fundurinn var vel sóttur og sóttu hann fulltrúar sveitarfélaga, lögreglu, heilbrigðisþjónustu, fræðsluyfirvalda, félagsþjónustu og annarra samstarfsaðila í heimahögum. Að þessu sinni var megináhersla lögð á farsæld barna og ungmenna með sérstakri umfjöllun um sameiginlega forvarnaáætlun Norðurlands vestra, FORNOR.
FORNOR, forvarnaráætlun Norðurlands vestra er samvinnuverkefni allra sveitarfélaga á svæðinu sem miðar að því að efla forvarnir og styðja við heilbrigðan þroska barna og ungmenna, með áherslu á snemmtækan stuðning, aukna fræðslu og samþættingu þjónustu. Í framhaldinu sköpuðust fjörugar umræður í pallborði þar sem m.a. var rætt hlutverk foreldra og hinna ólíku stofnana, hin ýmsu úrræði sem væri hægt að nýta til að styðja betur við farsæld barna og ungmenna og hvernig mætti auka eftirfylgni við FORNOR. Ösp Árnadóttir, verkefnastjóri hjá embætti landlæknis gaf svo ýmis góð ráð til forvarna.
Sigurður Hólmar Kristjánsson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, sagði í tengslum við fundinn: „Við höfum séð mikinn ávinning af þverfaglegu samstarfi á undanförnu ári. Það hefur skapað traust á milli aðila, styrkt tengslanet og skilað sér í markvissari þjónustu við íbúa og gesti Norðurlands vestra. Sérstaklega ánægjulegt er að sjá í þjónustukönnun lögreglunnar aukið traust íbúa. Er það von okkar og trú að samráðsvettvangurinn er mikilvægur til að halda sameiginlegri sýn á lofti og tryggja betur samfellu í aðgerðum.“
Á fundinum var Sveinbjörg Rut Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV), formlega boðin velkomin sem fullgildur meðlimur í samráðsvettvanginn. Hún lýsti ánægju sinni með aukna þátttöku samtakanna í þessu mikilvæga samstarfi og sagði: „Það er okkur mikilvægt að vera virkur hluti af samráði um forvarnir og farsæld barna á svæðinu. Framundan er að styðja sveitarfélög við uppbyggingu á svæðisbundna farsældarráði Norðurlandi vestra í þágu farsældar barna. Þátttaka okkar í Öruggara Norðurlandi vestra er að okkar mati mikilvægur þáttur í að styðja við sameiginlega stefnu og að góð þverfagleg verkefni eins og FORNOR fái áframhaldandi brautargengi.“
Samráðsvettvangur Öruggara Norðurlands vestra hefur það að markmiði að samræma og efla aðgerðir til að varna ofbeldi og öðrum afbrotum. Að samráðsvettvanginum stendur lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra, öll sveitarfélög á Norðurlandi vestra, sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra, Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra ásamt ungmennafélögunum USAH, USVH, UMSS og nú SSNV.
Sjá nánar:
Svæðisbundið samráð og samfélagslöggæsla
Stofnun Öruggara Norðurland vestra
Ætíð skal hafa samband við 112 í neyð