23 Apríl 2010 12:00

Sex manns, fimm karlar og ein kona sem öll voru handtekin um þar síðustu helgi, hafa verið úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald en þau eru grunuð um aðild á innflutningi kókaíns hingað til lands frá Spáni. Um er að ræða rúmlega 3 kg af mjög hreinu kókaíni. Þrír mannanna voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 21. maí og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Hinir, tveir karlar og ein kona, voru úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 30. apríl og er það á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Tveir aðrir karlar voru handteknir í þessu máli. Annar um áðurnefnda helgi en hinn fyrir rúmri viku. Sá síðarnefndi var úrskurðaður í gæsluvarðahald til 30. apríl og er því enn í haldi en hinum hefur verið sleppt, líkt og greint var frá á lögregluvefnum á miðvikudag. Í gær voru svo tveir til viðbótar handteknir í tengslum við málið. Það eru karl og kona á þrítugsaldri og hafa þau bæði verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 30. apríl.

Það eru lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum sem í sameiningu rannsaka málið en hafa við það notið aðstoðar embættis ríkislögreglustjóra, tollyfirvalda og Europol . Rannsóknin er nokkuð umfangsmikil en í tengslum við hana framkvæmdi lögreglan allmargar húsleitir og var í þeim lagt hald á umtalsverða fjármuni sem og skartgripi.