5 Maí 2009 12:00

Kona um þrítugt var í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðuð í gæsluvarðhald til 12. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Konan er grunuð um aðild að innflutningi fíkniefna. Hún hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar.