7 Apríl 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann amfetamín, marijúana og e-töflur við húsleit í Hafnarfirði í gær. Á sama stað var einnig lagt hald á skammbyssu. Húsráðandi, karl á sjötugsaldri, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Talið er að efnin hafi verið ætluð til sölu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.