22 Júní 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni í bifreið í Árbæ í Reykjavík um hádegisbil í gær. Um var að ræða um 1 kg af hassi.  Umráðamaður bílsins, karl um þrítugt, var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Í framhaldinu var framkvæmd húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu en í henni fundust nokkrir tugir kannabisplantna. Á sama stað var einnig lagt hald á fáeina muni sem grunur leikur á að séu þýfi.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.