14 Júní 2007 12:00

Í gærmorgun (miðvikudag) var karlmaður á fimmtugsaldri handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn hafði ekið sendibifreið sinni fram af vegkanti þar sem bifreiðin sat síðan föst. Vegna ástands ökumannsins hafði hann ekki veitt því nægjanlega athygli að akbrautin endaði og við tók úfið hraun og möl.

Við skoðun á málinu vaknaði grunur lögreglu um neyslu fíkniefna og fundust efni á ökumanninum. Þar sem lögreglan hefur haft tíð afskipti af honum undanfarið fékkst úrskurður fyrir leit á heimili hans í Hafnarfirði. Þar voru þrír einstaklingar handteknir, karlmaður  og kona á þrítugsaldri og 17 ára stúlka. Talsvert magn af fíkniefnum fannst á staðnum við leit lögreglu og einnig íblöndunarefni og bar húsnæðið merki mikillar neyslu. Á staðnum fannst einnig ætlað þýfi. Rannsókn og yfirheyrslur stóðu yfir í gærkvöldi og lauk í morgunsárið.

Yngri stúlkan verður vistuð á Stuðlum en sú eldri var eftirlýst og hefur þegar hafið afplánun refsivistar. Karlmönnunum hefur verið sleppt úr haldi eftir yfirheyrslur. Það er mat lögreglu að um 170 gr. af ætluðu amfetamíni hafi fundist við þessa aðgerð. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum tímabundið.