7 Janúar 2011 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi í Kópavogi í nótt. Um var að ræða hass, marijúana og amfetamín en talið er að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu. Á sama stað var einnig lagt hald á peninga sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.