1 Febrúar 2011 12:00

Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrír Þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, einn á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 28-50 ára og ein kona, 25 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.