9 Febrúar 2019 10:00

Lögreglan fær reglulega tilkynningar frá borgurum um netglæpi af ýmsu tagi. Meðal annars hefur fólki verið að berast póstur þar sem svindlarnir beita fyrir sér að hafa lykilorð viðkomandi og senda póst með tilkynningu um að þeir hafi yfirtekið tölvuna og náð myndefni af brotaþola þar sem hann/hún sé að skoða klámsíður. Ef greiðsla berist ekki innan tiltekins tíma og með bitcoin, eða annarri rafmynt, þá verði þessu myndefni af brotaþola dreift.

Lögreglan biður fólk að halda ró sinni fái það slíkan póst. Glæpamennirnir hafa ekki tekið yfir tölvu viðkomandi né hafa þeir yfir neinu skaðlegu myndefni að ráða. Lykilorðið er þó líkast til rétt. Það gerist af og til að tölvuþrjótar brjótast inn á síður á netinu og fá þá notandalista ásamt lykilorðum. Þessar upplýsingar eru síðan nýttar í slíkum pósti til að skapa hræðslu og óhug í þeirri von svindlaranna að fólk bregðist hrætt við og sendi peninga. Það getur verið mjög óþægilegt að fá slíkan póst og valdið uppnámi hjá fólki, enda er pósturinn sniðinn að því að hafa þau hughrif.

Góðar venjur:

  • Ef þú færð slíkan póst ekki senda peninga. Í raun er best að senda aldrei svindlurum peninga því þeir eru aðeins líklegir til að reyna að þvinga þig til að borga meira.
  • Ef þetta er lykilorð sem þú notar mikið og á viðkvæmum stöðum þá er þér ráðlagt að breyta því. Við mælum eindregið með fólk noti aðskild lykilorð á viðkvæmum stöðum eins og aðgangi að netfangi, samfélagsmiðlum og greiðsluþjónustum, heldur en það notar almennt á öðrum síðum. Það má koma sér upp einhverju kerfi eins og lykilorðabanka (password manager).
  • Fólki er líka bent á að síðan https://haveibeenpwned.com/ birtir upplýsingar um gagnaleka þar sem fólk getur skoðað hvort að eitthvað tengist netfangi þeirra.

Ef þið fáið tölvupóst með netsvindli þá megið þið endilega senda hann á cybercrime@lrh.is hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, en það gefur lögreglunni færi á að fylgjast með því sem er í gangi og bregðast við því fljótt og vel.