22 Janúar 2020 16:18

Lögreglan á Suðurlandi hefur, eftir fund með Svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 16, sem haldinn var í Vík í gærkvöldi, ákveðið að hætta formlegri leit að Rima Grunskyté Feliksasdóttur sem leitað hefur verið að frá því 23. desember s.l. Rima er talin hafa fallið í sjó af Dyrhólaey þann 20. desember 2019 og látist við það. Leit að henni hefur ekki borið árangur en henni hefur verið sinnt bæði formlega af stórum hópum björgunarsveitarmanna og einnig af minni hópum sem fylgst hafa með reki á fjörur á líklegum stöðum.   Fyrir liggur að því óformlega eftirliti verður áfram sinnt  eftir því sem aðstæður eru metnar gefa tilefni til hverju sinni.