Vitundarvakningunni Góða skólaskemmtun er ætlað að stuðla að öruggum og ánægjulegum skemmtunum fyrir öll, með áherslu á samstöðu gegn hvers kyns ofbeldi á viðburðum tengdum skólum.

Markmið vitundarvakningarinnar er að draga úr tíðni ofbeldisbrota, með sérstakri áherslu á kynferðisbrot og vopnalagabrot en innlendar rannsóknir benda til þess að algengi ofbeldisbrota sé hærra meðal ungs fólks en heilt yfir. Þannig sögðust 13% nemenda hafa orðið fyrir árás (ráðist á þau eða þau lamin) síðastliðna 12 mánuði samkvæmt könnun íslenskra æskulýðsrannsókna árið 2023 meðal framhaldsskólanema. Þegar spurt var í sömu könnun hvort nemandi hefði orðið fyrir tilraun til nauðgunar yfir ævina, sögðust 20% hafa orðið fyrir slíku ofbeldi.

Önnur markmið er að auka þekkingu allra samstarfsaðila á því hvernig er hægt að fyrirbyggja neikvæð atvik og draga úr áhættu tengt viðburðum. Þá hefur verið unnið að því að móta skýrt ferli við neyðaratvikum og tryggja stuðning við þolendur.

Þá verður lögð áhersla á að greina og taka á nýjum áskorunum í næturlífinu í góðu samstarfi við skólasamfélagið.

Meginskilaboð vitundarvakningarinnar eru:

  • Góð skemmtun er þegar öll koma heil heim. 112 aðstoðar í neyð.
  • Kynmök án samþykkis er nauðgun. Skemmtum okkur vel án ofbeldis.
  • Vopnaburður á almannafæri er bannaður. Góða skemmtun á skólaballinu.

Er skemmtunin með leyfi? Skemmtanir á vegum skóla þurfa á tækifærisleyfi að halda. Almenna reglan er að sækja þarf um tækifærisleyfi fyrir einstakar skemmtanir eða atburði sem fara fram utan veitinga- og gististaða í atvinnuskyni og kalla á eftirlit og/eða löggæslu. Þar má nefna útihátíðir, útitónleika, skóladansleiki og tjaldsamkomur.  Þó staður sé með rekstrarleyfi kallar það á tækifærisleyfi fyrir skólaskemmtanir ef börn og ungmenni taka þátt. 

Sýslumenn veita tækifærisleyfi og er sótt er um leyfi á island.is

Hér fyrir neðan má nálgast góð ráð fyrir skóla, nemendur, foreldra og forsjáraðila til að deila áfram til að auka líkur á öruggri og ofbeldislausri skemmtun.

Góð ráð til skóla og nemendafélaga

Góð ráð til foreldra og forsjáraðila

Enjoy yourself – school events – parents and guardians

Góða skólaskemmtun á 112.is