27 Ágúst 2019 09:30

Framkvæmdir eru hafnar við breikkun fráreinar til austurs við hlið syðri akreina á Bústaðavegi, þ.e. milli Suðurhlíðar og Kringlumýrarbrautar. Á þessum kafla verður annarri akrein fyrir umferð til austurs um Bústaðaveg lokað tímabundið, meðan á framkvæmdinni stendur. Einnig verður unnið við umferðarljós og breytingar á akreinum akstursrampa Bústaðavegar, til suðurs að Kringlumýrarbraut. Framkvæmdir munu standa yfir á þessu svæði nú í haust og eru verklok áætluð 15. nóvember. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við akstur um vinnusvæðið.