9 Júní 2025 11:49
Í kvöld frá kl. 19 – 22 er stefnt á að fræsa 560 m. kafla á Reykjanesbraut í Garðabæ, frá afleggjara við Vífilsstaðaveg og í norðurátt. Þrengt verður niður í eina akrein og verður hjáleið um hringtorg á Vífilsstaðavegi. Í kjölfarið, frá kl. 22 -03 aðfaranótt þriðjudags, er stefnt á að fræsa 400 m. kafla á Reykjanesbraut í Kópavogi, milli Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegar. Þrengt verður niður í eina akrein og verður hjáleið um Bæjarlind og Fífuhvammsveg.
Og í kvöld frá kl. 17 – 23 er stefnt á að malbika báðar akreinar á Arnarnesvegi frá Smárahvammsvegi að hringtorgi við Reykjanesbraut. Þessum kafla Arnarnesvegar verður lokað á meðan. Í kjölfarið, frá kl. 22 -03 aðafaranótt þriðjudags, verður rampur af hringtorgi á Arnarnesvegi að Reykjanesbraut til norðurs malbikaður. Rampinum verður lokað á meðan og þrengt að umferð á Reykjanesbraut niður í eina akrein fram hjá framkvæmdasvæðinu.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.