15 Maí 2025 13:32

Framkvæmdir við nýja göngu- og hjólabrú við Sæbraut í Reykjavík eru í fullum gangi. Og nú stendur til að hífa upp nýju brúna og koma henni fyrir á stigahúsum við veginn. Það verður gert að næturlagi svo áhrif á umferðina verði sem minnst, en nánar má lesa um þetta á heimasíðu Vegagerðarinnar.

Vegagerðin