26 Janúar 2016 11:15

Flugfarþegi sem var á leið frá Þýskalandi til Kanada framvísaði breytifölsuðu vegabréfi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrradag. Við skoðun vakti upplýsingasíða vegabréfsins athygli þar sem hún var frábrugðin því sem tíðkast. Vegabréfið var síðan úrskurðað breytifalsað. Lögreglan á Suðurnesjum handtók farþegann og færði á lögreglustöð. Mál hans er komið í hefðbundið ferli.