27 September 2011 12:00

 Í framhaldi af fréttatilkynningu ríkislögreglustjóra fyrr í dag um ábendingu Ríkisendurskoðunar er rétt að geta um eftirfarandi:
Markaður með lögregluvörur
Íslenskur markaður er smár og þegar kemur að ýmsum sérhæfðum vörum í sérhæfðum atvinnugreinum er  markaðurinn mjög smár. Fyrirtæki sem eru umboðsaðilar á Íslandi fyrir búnað til lögreglustarfa eiga það flest sameiginlegt að tengjast starfandi eða fyrrverandi lögreglumönnum með beinum eða óbeinum hætti.
Hluti þeirra innkaupa sem áttu sér stað á árunum 2008-2011 var vegna búnaðar sem er fjallað um í vopnalögum nr. 16/1998. Sérstakt leyfi ríkislögreglustjóra þarf til þess að flytja handjárn, kylfur og annan valdbeitingarbúnað til landsins og er búnaðurinn einungis heimill til löggæslustarfa. Ríkislögreglustjóri hefur tæmandi yfirlit yfir hverjir hafa slíka heimild og var leitað eftir tilboðum frá þeim aðilum.
Viðskipti í bága við lög um opinber innkaup
Hvað varðar kaup af Landsstjörnunni þá var heildafjárhæð viðskiptanna 13,7 m.kr. á tímabilinu 2008-2011. Þar af var keypt óeirðagas fyrir 6 m.kr. Ríkisendurskoðun telur að viðskipti að fjárhæð 7,8 m.kr. hafi farið í bága við lög um opinber innkaup þar sem ekki hafi verið leitað tilboða frá fleiri en einum aðila. Af þessum 7,8 m.kr. er 4,7 m.kr. tilkomin vegna innkaupa á lögreglukylfum. Ríkislögreglustjóri hefur með umburðarbréfi, dags 19. febrúar 2007, veitt heimild til notkunar á ákveðnum tegundum lögreglukylfa. Vandséð er að samkeppnismarkaður sé til staðar fyrir þær tegundir af kylfum sem lögreglan hefur heimild til notkunar. Því er ólíklegt að útboð hefði leitt til betri niðurstöðu.
Varðandi kaup af Trademark ehf. þá kemur fram í ábendingu Ríkisendurskoðunar að ríkislögreglustjóri er ósammála stofnuninni um hvort innkaupin séu ein eða þrenn. Vísar Ríkisendurskoðun til þess að Evrópusambandið hafi búið til flokkunarkerfi. Samkvæmt flokkunarkerfi sambandsins eiga þessar vörur það sameiginlegt að vera „Police Equipment“ og því eina og sama varan. Ríkislögreglustjóri gerir engan ágreining um að vörurnar séu lögregluvörur en áréttar að um þrenn innkaup hafi verið að ræða á ólíkum vörum sem eiga það eitt sameiginlegt að vera til löggæslustarfa.
Ríkislögreglustjóri bendir á að lögum samkvæmt er stofnunum ríkisins ekki óheimilt að eiga viðskipti við fyrirtæki í eigu lögreglumanna eða tengdra aðila.