2 Júlí 2025 15:32

Jarðhræringar og áframhaldandi landris á Reykjanesskaga

 

Dagsett: 2. júlí 2025

 

Landris og jarðskjálftavirkni halda áfram – mögulegur atburður síðsumars eða í haust

Landris í Svartsengi heldur áfram og jarðskjálftavirkni hefur verið stöðug síðustu vikur. Að meðaltali mælast um 10 smáskjálftar á dag, flestir þeirra norðan við Grindavík samkvæmt fréttatilkynningu frá Veðurstofu Íslands . Kvikusöfnun í kvikuhólfinu undir Svartsengi heldur áfram. Hraði landrisins hefur þó dregist saman síðustu vikurnar.

Þrátt fyrir þessa virkni hafa ekki orðið neinar breytingar á helstu mælingum sem gefa tilefni til endurskoðunar á hættumati VÍ . Ef kvikusöfnun heldur áfram má þó búast við auknum líkum á kvikuhlaupi eða eldgosi þegar líður á sumarið eða fram á haust.

 

Hættumatskort í gildi til 15. júlí

Veðurstofan hefur gefið út uppfært hættumatskort sem tók gildi 18. júní og gildir til 15. júlí 2025, að öllu óbreyttu. Kortið nær yfir helstu hættusvæði á svæðinu og lýsir bæði þeim hættum sem nú þegar eru til staðar sem og þeim sem gætu skapast við áframhaldandi virkni í Svartsengiskerfinu.

 

Aðstæður eru vaktaðar af nákvæmni í samstarfi við Veðurstofuna, viðbragðsaðila og vísindasamfélagið. Ítarlegar upplýsingar um hvernig hættumat og hættumatskort eru gerð má nálgast á vef Veðurstofunnar

Hættumatskort | Veðurstofa Íslands

 

 

Óvissustig áfram í gildi

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, færði almannavarnastig úr hættustigi niður á óvissustig þann 8. apríl sl. Vöktun og viðbúnaður eru þó áfram í fullu gildi, með daglegu eftirliti í Grindavík.

 

Uppfært áhættumat endurspeglar núverandi stöðu

Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík, í samstarfi við Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, hefur uppfært áhættumat í samræmi við áframhaldandi virkni. Helstu atriði úr matinu eru eftirfarandi:

  • Miðlungs áhætta er metin í þéttbýli Grindavíkur en lág á Svartsengissvæðinu. Hún er þó metin há fyrir ferðamenn/ytri aðila yfir nóttina.
  • Mjög há eða óásættanleg áhætta er á gossvæðum og svæðum þar sem sprengihætta er fyrir hendi – slík svæði eru lokuð óviðkomandi.
  • Aðgangur að varnargörðum í Grindavík og Svarsengi er áfram lokaður almenningi.

 

Hægt verður að nálgast áhættumatið á vef Almannavarna seinna í dag.

 

Ábendingar til almennings og ferðaþjónustu

  • Umferð til og frá Grindavík er opin almenningi og ferðaþjónustu. Hættusvæði innan bæjarmarka hafa verið girt af.
  • Bláa Lónið, gistihús, veitingastaðir og tjaldsvæði eru opin með viðeigandi öryggisráðstöfunum.
  • Sprengihætta er til staðar á gömlu æfingasvæði varnarliðsins sunnan Voga og við Reykjanesbraut – vinsamlegast haldið ykkur við merktar gönguleiðir.
  • Gönguleiðir í Fagradalsfjalli eru opnar. Landverðir veita ferðamönnum upplýsingar yfir daginn – vinsamlegast farið einungis eftir merktum leiðum.
  • Viðvörunarflautur eru virkar í Grindavík, við Svartsengi og Bláa Lónið – ætlaðar til að vara við rýmingu ef til hennar kemur.
  • Aðstæður geta breyst með litlum fyrirvara.
  • Þeir sem dvelja á hættusvæðum gera það á eigin ábyrgð.

 

Viðbúnaður og vöktun áfram í fullu gildi

Viðbragðsaðilar fylgjast daglega með aðstæðum og leggja mat á mögulega þróun. Unnið er áfram að eflingu varna og viðbragðsáætlana með hliðsjón af mögulegum atburði síðar í sumar eða í haust. Þrátt fyrir að vettvangsstjórn í Grindavík sé ekki virk á óvissustigi er viðbúnaður slökkviliðs og lögreglu til staðar.

 

Nánari upplýsingar og gagnlegar slóðir

 

Fréttatilkynning verður næst uppfærð 15. júlí, eða fyrr ef aðstæður breytast.