3 Apríl 2025 08:41
Engin virkni er sjáanleg í gossprungu sem opnaðist þann 1. apríl 2025 um klukkan 9:45 suðvestan af fjallinu Þorbirni, norðan við Grindavík. Svæðið er óstöðugt og varasamt. Talsverð jarðskjálftavirkni mælist á Reykjanesskaga. Talið er ólíklegt að ný gosop verði yfir kvikuganginum, þótt ekki sé hægt að útiloka það vegna þess að enn mælist töluverð smáskjálftavirkni á svæðinu.
Veðurstofan uppfærði hættumat fyrir svæðið kl. 15 í gær, sjá hættumatskort í viðhengi. Hættumatið gildir til 4. apríl nk., kl. 15 að öllu óbreyttu. Hættumatið felur í sér breytingar, sjá nánar: Engin virkni sjáanleg í gossprungunni sem opnaðist í gær | Fréttir | Veðurstofa Íslands
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákvað fyrir hádegi í gær að færa almannavarnastig af neyðarstigi á hættustig. Fréttatilkynning um breytingu á almannavarnastigi var birt á heimasíðu almannavarna kl. 11:27 sama dag. Sjá á slóðinni:
Af neyðarstigi á hættustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga | Almannavarnir
Framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa i Grindavíkurbæ hefur í dag uppfært áhættumat m.a. fyrir þéttbýlið í Grindavík en niðurstöður eru þessar. Áhættumatið verður birt á heimasíðu almannavarna á slóðinni: Almannavarnir
,,Á grundvelli áhættumats verkfræðistofunnar, sem m.a. tekur tillit til hættumats Veðurstofunnar og þeirra varna sem eru til staðar og unnið er sífellt að, er það niðurstaða Framkvæmdanefndarinnar og Almannavarnadeildar að áhætta allra aðila sé mjög há, sem þýðir að varnir gegn hættum séu til staðar en mikil hætta sé á alvarlegum atburðum. Því er fólki, öðrum en viðbragðsaðilum og þeim sem starfa sinna vegna þurfa að vera á ferðinni í Grindavík, ráðið frá því að vera á svæðinu.
Áhættumat verkfræðistofunnar Örugg er unnið fyrir þrjú svæði, þ.e. 1) gossvæði/sprengisvæði, 2) Svartsengi og 3) Grindavík (þéttbýli). Matið er unnið fyrir fjóra hópa, þ.e. 1) viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka, 2) íbúa, 3) fyrirtæki og 4) ytri aðila og ferðamenn.
Í Grindavík er áhætta metin há fyrir viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka, mjög há fyrir íbúa og fyrirtæki og óásættanleg fyrir ytri aðila og ferðamenn. Á Svartsengissvæðinu er áhætta talin miðlungs fyrir viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka en há fyrir fyrirtæki, ytri aðila og ferðamenn. Á gos-/sprengisvæði er áhættan hins vegar óásættanleg fyrir alla aðila. Mælt er gegn því að óviðkomandi fari inn á gos- og sprengisvæði.
Farið er í eftirlitsferðir hvern morgun, og yfir daginn, til að kanna hvort einhverjar varnir hafi gefið sig og gert við lokanir þar sem þess kann að gerast þörf.
Áhættumatið gildir þar til nýtt áhættumat er gefið út.“
Lokunarpóstar eru á Grindavíkurvegi, Suðurstrandarvegi og Nesvegi. Aðgangur er því takmarkaður inn á hættusvæðið. Grindavíkurvegur er nú opinn inn að Bláa lóni og orkuverinu í Svartsengi. Færð á vegum getur spillst með stuttum fyrirvara á þessum tíma árs.
Viðbragðsaðilar, hópur vísindamanna og einstaklingar á vegum Blaðamannafélags Íslands, með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum, er heimilt að fara inn fyrir lokunarpósta. Koma þarf við í björgunarhúsinu í Grindavík áður en farið er inn á merkt vinnusvæði. Hús björgunarsveitarinnar Þorbjörns er staðsett að Seljabót 10, Grindavík. Íbúar Grindavíkur og starfsmenn þar hafa heimild til að fara inn fyrir lokunarpósta inn til Grindavíkur um Grindavíkurveg, Nesveg og Suðurstrandarveg. Lokunarpóstar ná ekki til orkuversins, Bláa lónsins og Northern Light Inn. Flóttaleiðir eru um Bláalónsveg og Grindavíkurveg. Sem stendur er ferðamönnum ekki hleypt inn til Grindavíkur.
Aðgengi inn á hættusvæði er ákveðið með vísan til 23. gr. laga um almannvarnir nr. 82/2008. Við takmörkun á aðgengi er m.a. horft til hættumats Veðurstofu Íslands og áhættumats framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ sem unnið er í samvinnu við ríkislögreglustjóra.
- Íbúar og starfsmenn fyrirtækja dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Það sama gildir um ferðamenn. Vont veður og slæm færð dregur úr öryggi fólks inn á hættusvæðum jafnframt því að hafa áhrif á vöktunargetu Veðurstofu Íslands.
- Lögreglustjóri mælir með því að fólk skoði meðfylgjandi hættumatskort Veðurstofu Íslands. Þá mælir hann með því að fólk kynni sér efni fréttatilkynningar ríkislögreglustjóra sem send var út 2. apríl sl.
- Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi innan hættusvæða sem felast m.a. í hækkun varnagarða, í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun. Þá hafa sprungur verið girtar af.
Á svæði sunnan Voga og Reykjanesbrautar hefur verið leitað að sprengjum í gegnum tíðina. Það svæði er talið mengað af virkum sem óvirkum sprengjum sem geta valdið manntjóni ef þær springa en hiti eða hreyfingar geta haft þar áhrif. Staðsetning innan 300 metra frá miðpunkti stórrar sprengju getur valdið manntjóni. Á svæðinu eru fallbyssukúlur, sprengjuvörpur (Mortar) og æfingasprengjur. Það er hins vegar aðeins fyrir sprengjusérfræðinga að meta ástand og gerð þessara sprengna. Þá liggja ekki fyrir nákvæmar upplýsingar um útbreiðslu né stærð þessa svæðis en Landhelgisgæsla Íslands hefur dregið upp neðangreint kort til upplýsingar. Inn á þessu svæði þurfa viðbragðsaðilar sem aðrir að halda sig við merkta gönguslóða. Vakin er athygli á þessari hættu með skiltum sem staðið hafa við upphaf gönguleiða í áratugi. Það þekkja heimamenn og útivistamenn sem gengið hafa um svæðið. Nauðsynlegt er að vekja athygli á þessum staðreyndum. Það eru tilmæli lögreglustjóra til ferðaþjónustuaðila og þeirra sem veita erlendum ferðamönnum upplýsingar að koma þessum upplýsingum á framfæri við ferðamenn. Ferðamenn haldi sig við merktar gönguleiðir og slóða. Skipulögð bílastæði eru ekki fyrir hendi né útsýnisaðstaða. Ökumenn leggi ekki bílum á og við Reykjanesbraut. Sama gildir um Grindavíkurveg.
Aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.
Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík. Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi. Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.
Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.
Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/ þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni www.almannavarnir.is
Þeir sem eiga erindi inn á hættusvæði er bent á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni: https://loftgaedi.is/ Þar eru jafnframt góðar leiðbeiningar. Bent er á upplýsingar á vefsíðu Landlæknisembættisins, á slóðinni: https://island.is/eldgos-heilsa og vefsíðu Vinnueftirlitsins, á slóðinni: https://vinnueftirlitid.is/
Fréttatilkynningin verður uppfærð þann 4. apríl 2025 eða fyrr eftir atvikum.
Tilkynnist hér með.