20 Mars 2025 08:11
Fréttatilkynning til fjölmiðla – almannavarnastig: Hættustig.
Sjöunda eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni lauk mánudaginn 9. desember 2024. Síðast sást virkni í gígnum um kl. sjö þann 8. desember sl. Eldgosið milli Stóra – Skógfells og Sýlingarfells hófst kl. 23:14 miðvikudaginn 20. nóvember sl. og stóð yfir í 18 daga.
Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram. Rúmmál kviku undir Svartsengi hefur aldrei verið meira frá því að goshrinan hófst í desember 2023. Skjálftavirkni hefur aukist hægt síðustu vikur. Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir undir Svartsengi eru auknar líkur á eldgosi. Ekki er víst að jarðskjálftavirkni verði mikil fyrir næsta eldgos. Eldgos getur hafist með mjög skömmum fyrirvara. Veðurstofan uppfærði hættumat fyrir svæðið 18. mars sl., sjá viðhengi. Hættumatið gildir að öllu óbreyttu til 25. mars nk. og felur ekki í sér breytingar.
Sjá nánar á Engin merki um landsig í kringum Svartsengi | Fréttir | Veðurstofa Íslands
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákvað þann 30. janúar 2025 að færa almannavarnastig af óvissustigi á hættustig. Fréttatilkynning um breytingu á almannavarnastigi var birt á heimasíðu almannavarna þann dag kl. 17:04, sjá á slóðinni https://www.almannavarnir.is/frettir/auknar-likur-a-eldgosi-a-sundhnuksgigjarodinni-haettustig-almannavarna/
Í gildi er niðurstaða áhættumats framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ sem unnið var í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra þann 22. febrúar 2025. Áhættumatið var uppfært 10. mars sl. án breytinga:
Uppfært áhættumat – 10.mars 2025 | Almannavarnir
,,Samkvæmt c. lið 3. gr. laga nr. 40/2024 um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ er eitt verkefna nefndarinnar; gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra. Áhættumat þetta snýr fyrst og fremst að þéttbýli Grindavíkur í samræmi við áður tilgreint ákvæði laga um framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavík en önnur svæði eru einnig nefnd.
Við áhættumatið er litið til uppfærðs hættumats Veðurstofu Íslands frá 21. febrúar 2025 og áhættumats sem unnið er af verkfræðistofunni Örugg, dags. 21. febrúar 2025, stöðu innviða og þeirra varna sem eru til staðar. Þar með talið eru framkvæmdir við innviði til að auka öryggi í bænum. Jafnframt er tekið mið af tilkynningu lögreglustjórans á Suðurnesjum frá 28. janúar sl.
Í Grindavík er áhætta há fyrir alla hópa, bæði að nóttu sem degi. Á Svartsengissvæðinu er áhætta talin há, bæði að nóttu sem degi. Á gos-/sprengisvæði er áhættan hins vegar óásættanleg fyrir viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka, ytri aðila og ferðafólk. Mælt er gegn því að óviðkomandi fari inn á gos- og sprengisvæði.
Uppfærðir líkanareikningar Veðurstofunnar sýna að magn kviku sem hefur safnast fyrir undir Svartsengi er nú jafn mikið og það var fyrir gosið sem hófst 20. nóvember í fyrra og miðað við reynslu fyrri atburða má ætla að vaxandi líkur séu á að næsti atburður hefjist innan nokkurra daga eða vikna. Sífellt færri og minni skjálftar mælast á svæðinu vikurnar og dagana fyrir gos en gerðu í aðdraganda fyrstu eldgosanna og fyrirvari um eldgos verður styttri, allt niður í 30 mínútur.“
Viðbragðsaðilar, hópur vísindamanna og einstaklingar á vegum Blaðamannafélags Íslands, með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum, er heimilt að fara inn á vinnusvæði í Svartsengi í samráði við stjórnendur vinnusvæða. Koma þarf við í björgunarhúsinu í Grindavík áður en farið er inn á vinnusvæði.
Hús björgunarsveitarinnar Þorbjörns er staðsett að Seljabót 10, Grindavík.
Opið er fyrir almenna umferð til og frá Grindavík um Grindavíkurveg, Nesveg og Suðurstrandarveg. Færð á vegum getur spillst með stuttum fyrirvara á þessum tíma árs.
- Íbúar og starfsmenn fyrirtækja dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Það sama gildir um ferðamenn. Vont veður og slæm færð dregur úr öryggi fólks inn á hættusvæðum jafnframt því að hafa áhrif á vöktunargetu Veðurstofu Íslands.
- Lögreglustjóri mælir með því að fólk skoði meðfylgjandi hættumatskort Veðurstofu Íslands. Þá mælir hann með því að fólk kynni sér efni fréttatilkynningar ríkislögreglustjóra sem send var út 30. janúar sl.
- Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi innan hættusvæða sem felast m.a. í hækkun varnagarða, í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun. Þá hafa sprungur verið girtar af.
- Þjóðvegir til og frá Grindavík eru nú opnir fyrir almenna umferð.
Lögregla sendir út eftirfarandi varnaðarorð inn á farsíma (GSM) í Svartsengi og í Grindavík: Grindavik is a volcanic area! Increased activity is observed, eruption may be possible. Stay alerted and prepared for evacuation. Info at www.safetravel.is Gera má ráð fyrir því að slíkar sendingar ,,leki“ út fyrir skilgreint hættusvæði. Tilgangur með þessum sendingum er að ná til erlendra ferðamanna sem koma inn á hættusvæðið. Fyrirkomulag verður endurskoðað næstkomandi föstudag dragi ekki áður til tíðinda innan hættusvæðis.
Opið er í Bláa lónið og Northern Light Inn og hefur svo verið frá 6. desember sl. Flóttaleiðir eru um Bláalónsveg og Grindavíkurveg.
Aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.
Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík. Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi. Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.
Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.
Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/ þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni www.almannavarnir.is
Þeir sem eiga erindi inn á hættusvæði er bent á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni: https://loftgaedi.is/ Þar eru jafnframt góðar leiðbeiningar. Bent er á upplýsingar á vefsíðu Landlæknisembættisins, á slóðinni: https://island.is/eldgos-heilsa og vefsíðu Vinnueftirlitsins, á slóðinni: https://vinnueftirlitid.is/
Fréttatilkynning verður uppfærð 25. mars 2025 eða fyrr eftir atvikum.