2 Apríl 2025 09:02

Engin virkni er sjáanleg í gossprungu sem opnaðist í gær um klukkan 9:45 suðvestan af fjallinu Þorbirni, norðan við Grindavík.   Enn logar þó glóð í nýju hrauni.  Að mati vísindamanna flæðir kvika enn inn í kvikuganginn.   Svæðið er óstöðugt og varasamt.  Talsverð jarðskjálftavirkni mældist í gær á Reykjanesskaga en í gærkvöldi tók að draga úr þeirri virkni en hún heldur þó áfram.

Veðurstofan uppfærði hættumat fyrir svæðið í gær, sjá viðhengi.  Hættumatið gildir til dagsins í dag, sjá nánar:  Dregið hefur úr eldgosinu norðun við Grindavík | Fréttir | Veðurstofa Íslands

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákvað í gær að færa almannavarnastig af  hættustigi á neyðarstig.   Fréttatilkynning um breytingu á almannavarnastigi var birt á heimasíðu almannavarna í gær kl. 10:06, sjá á slóðinnNeyðarstig Almannavarna vegna eldgoss á Reykjanesskaganum. | Almannavarnir  Gera má ráð fyrir því að breyting verði á almannavarnastigi í dag.

Áhættumat framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur, unnið í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra var uppfært kl. 17 í gær.

Lokunarpóstar eru á Grindavíkurvegi, Suðurstrandarvegi og Nesvegi.   Aðgangur er því takmarkaður inn á hættusvæðið.

Lögreglustjóri gerir ráð fyrir breytingum á almannavarnastigi í dag og endurskoðun á aðgangi inn á hættusvæði.

Fréttatilkynningin verður uppfærð fyrir hádegi í dag eða síðar eftir atvikum.