30 Janúar 2025 16:04
Sjöunda eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni lauk mánudaginn 9. desember 2024. Síðast sást virkni í gígnum um kl. sjö þann 8. desember sl. Eldgosið milli Stóra – Skógfells og Sýlingarfells hófst kl. 23:14 miðvikudaginn 20. nóvember sl. og stóð yfir í 18 daga. Landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram. Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir undir Svartsengi eru auknar líkur á eldgosi. Ekki er víst að jarðskjálftavirkni verði mikil fyrir næsta eldgos. Veðurstofan uppfærði hættumat fyrir svæðið þann 28. janúar, sjá viðhengi. Hættumatið gildir að öllu óbreyttu til 11. febrúar nk. og felur í sér markverðar breytingar.
Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákvað þann 9. desember 2024 að fara af hættustigi á óvissustig þar sem eldgosinu er lokið. Tilkynning um breytingu á almannavarnastigi var birt á heimasíðu almannavarna þann dag kl. 16:06, sjá á slóðinni https://www.almannavarnir.is/
Niðurstöður úr áhættumati framkvæmdanefndar vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra. Uppfært 29. janúar 2025:
,,Á grundvelli áhættumats verkfræðistofunnar Örugg, sem m.a. tekur tillit til hættumats Veðurstofunnar og þeirra varna sem eru til staðar og unnið er sífellt að, er það niðurstaða Framkvæmdanefndarinnar og Almannavarnadeildar að áhætta allra aðila sé há, sem þýðir að varnir gegn hættum séu til staðar en talsverð óvissa. Því er fólki ráðið frá því að vera á ferðinni í Grindavík að nauðsynjalausu.
Áhættumat verkfræðistofunnar Örugg er unnið fyrir þrjú svæði, þ.e. 1) gossvæði/sprengisvæði, 2) Svartsengi og 3) Grindavík (þéttbýli). Matið er unnið fyrir fjóra hópa, þ.e. 1) viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka, 2) íbúa, 3) fyrirtæki og 4) ytri aðila og ferðamenn.
Í Grindavík er áhætta há fyrir alla hópa, bæði að nóttu sem degi. Á Svartsengissvæðinu er áhætta talin há, bæði að nóttu sem degi. Á gos-/sprengisvæði er áhættan hins vegar óásættanleg fyrir viðbragðsaðila, ráðgjafa og verktaka, ytri aðila og ferðafólk. Mælt er gegn því að óviðkomandi fari inn á gos- og sprengisvæði.
Farið er í eftirlitsferðir hvern morgun, og yfir daginn, til að kanna hvort einhverjar varnir hafi gefið sig og gert við lokanir þar sem þess kann að gerast þörf.
Áhættumatið gildir þar til nýtt áhættumat er gefið út.“
Viðbragðsaðilar, hópur vísindamanna og einstaklingar á vegum Blaðamannafélags Íslands, með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum, er heimilt að fara inn á vinnusvæði í Svartsengi í samráði við stjórnendur vinnusvæða. Samkomulagið við Blaðamannafélag Íslands gildir út janúar 2025. Koma þarf við í björgunarhúsinu í Grindavík áður en farið er inn á vinnusvæði. Hús björgunarsveitarinnar Þorbjörns er staðsett að Seljabót 10, Grindavík.
Opið er fyrir almenna umferð til og frá Grindavík um Grindavíkurveg, Nesveg og Suðurstrandarveg. Færð á vegum getur spillst með stuttum fyrirvara á þessum tíma árs.
- Íbúar og starfsmenn fyrirtækja dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Það sama gildir um ferðamenn. Hættur eru nú taldar töluverðar af áhrifum eldgoss í Grindavík. Vont veður og slæm færð dregur úr öryggi fólks inn á hættusvæðum jafnframt því að hafa áhrif á vöktunargetu Veðurstofu Íslands.
- Lögreglustjóri mælir með því að fólk skoði meðfylgjandi hættumatskort Veðurstofu Íslands.
- Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi innan hættusvæða sem felast m.a. í hækkun varnagarða, í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun. Þá hafa sprungur verið girtar af.
- Þjóðvegir til og frá Grindavík eru nú opnir fyrir almenna umferð.
Á svæði sunnan Voga og Reykjanesbrautar hefur verið leitað að sprengjum í gegnum tíðina. Það svæði er talið mengað af virkum sem óvirkum sprengjum sem geta valdið manntjóni ef þær springa en hiti eða hreyfingar geta haft þar áhrif. Staðsetning innan 300 metra frá miðpunkti stórrar sprengju getur valdið manntjóni. Á svæðinu eru fallbyssukúlur, sprengjuvörpur (Mortar) og æfingasprengjur. Það er hins vegar aðeins fyrir sprengjusérfræðinga að meta ástand og gerð þessara sprengna. Þá liggja ekki fyrir nákvæmar upplýsingar um útbreiðslu né stærð þessa svæðis en Landhelgisgæsla Íslands hefur dregið upp neðangreint kort til upplýsingar. Inn á þessu svæði þurfa viðbragðsaðilar sem aðrir að halda sig við merkta gönguslóða. Vakin er athygli á þessari hættu með skiltum sem staðið hafa við upphaf gönguleiða í áratugi. Það þekkja heimamenn og útivistamenn sem gengið hafa um svæðið. Nauðsynlegt er að vekja athygli á þessum staðreyndum. Það eru tilmæli lögreglustjóra til ferðaþjónustuaðila og þeirra sem veita erlendum ferðamönnum upplýsingar að koma þessum upplýsingum á framfæri við ferðamenn. Ferðamenn haldi sig við merktar gönguleiðir og slóða. Skipulögð bílastæði eru ekki fyrir hendi né útsýnisaðstaða. Ökumenn leggi ekki bílum á og við Reykjanesbraut. Sama gildir um Grindavíkurveg.
Opið er í Bláa lónið og Northern Light Inn og hefur svo verið frá 6. desember sl. Flóttaleiðir eru um Bláalónsveg og Grindavíkurveg.
Aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.
Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík. Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi. Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.
Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.
Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/ þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni www.almannavarnir.is
Þeir sem eiga erindi inn á hættusvæði er bent á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni: https://loftgaedi.is/ Þar eru jafnframt góðar leiðbeiningar. Bent er á upplýsingar á vefsíðu Landlæknisembættisins, á slóðinni: https://island.is/eldgos-heilsa og vefsíðu Vinnueftirlitsins, á slóðinni: https://vinnueftirlitid.is/
Fréttatilkynning verður uppfærð þann 11. febrúar 2025 eða fyrr eftir atvikum.