20 Febrúar 2025 11:22

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Suðurlandsvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, við Gunnarshólma. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 284 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 90 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.