2 Júlí 2012 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Suðurlandsvegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í austurátt, við Gunnarshólma. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 461 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða en þarna er 90 km hámarkshraði. Meðalhraði hinna brotlegu var 100.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.