18 Apríl 2016 17:30

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Lækjargötu í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lækjargötu í austurátt, við Hverfisgötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 224 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Lækjargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.