8 Nóvember 2018 11:59

Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í morgun um að karlmaður fæddur 1965 skuli, að kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi, sæta gæsluvarðhaldi allt til kl. 16:00 þann 29. nóvember n.k. Krafan byggir á ákvæðum 2. mgr. 95. gr. sakamálalaga nr. 88/2008

Kona sem einnig sætti gæsluvarðhaldi vegna sama máls er nú í skýrslutöku hjá lögreglu.   Ekki er að vænta frekari frétta frá lögreglu af rannsókninni að sinni.