18 Ágúst 2009 12:00

Rannsókn lögreglu á ofbeldis- og frelsissviptingarmáli sem upp kom á Akureyri í síðastliðinni viku gengur vel. Lögregla hefur lagt mikinn kraft í rannsóknina og liggur nú fyrir greinargóð mynd af atburðum. Síðan málið kom upp hafa starfað sleitulaust að henni lögreglumenn úr rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri og úr fíkniefnahóp lögreglunnar á Norðurlandi.

Tveir karlmenn, annar á þrítugsaldri en hinn um fimmtugt, hafa setið í vikulöngu gæsluvarðhaldi vegna málsins.  Þá sætti stúlka um tvítugt gæsluvarðhaldi fram á föstudaginn síðasta. Mennirnir tveir eru m.a. grunaðir um frelsissviptingu, stórfellda líkamsárás og fjárkúgun.  Samkvæmt því sem fram hefur komið við rannsóknina virðist yngri maðurinn vera höfuðpaurinn í málinu. Þáttur stúlkunnar virðist minni en hún er þó m.a. grunuð um að hafa ekki komið manni í lífsháska til bjargar. 

Auk þeirra sem sættu gæsluvarðhaldi handtók og yfirheyrði lögreglan par á þrítugsaldri í síðustu viku, en ekki þótti ástæða til að fara fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Þá hefur lögregla yfirheyrt fjölda vitna og aflað viðamikilla gagna.

Atburðarásin virðist vera á þann veg að sunnudag skvöldið 9. ágúst var þolandinn í þessu máli, drengur um tvítugt, fenginn af heimili sínu og heim til höfuðpaursins í málinu. Þar var honum haldið næsta hálfa sólarhringinn. Höfuðpaurinn segist hafa ætlað að rukka drenginn um skuld, til komna vegna fíkniefna, en upphæð skuldarinnar er mjög á reiki.

Ítrekað var gengið í skrokk á drengnum með höggum og spörkum um kvöldið og nóttina. Ekki var látið þar við sitja heldur var drengurin einnig sleginn með járnröri í höfuðið og víðar um líkamann. Drengurinn mátti þola ýmsar ógeðfelldar niðurlægingar yfir nóttina og grófar hótanir. 

Lögregla rannsakar einnig hvort hinir grunuðu hafi gerst sekir um íkveikjutilraun og almannahættubrot þegar brennandi pappír var kastað að þolandanum, en íbúðin sem honum var haldið í er í fjölbýlishúsi.

Að morgni mánudagsins hringdi þolandinn í foreldra sína og var reynt að láta hann kúga fé út úr þeim. Foreldrarnir snéru sér aftur á móti beint til lögreglu sem í framhaldi réðist til inngöngu í fjölbýlishúsið, frelsaði þar drenginn og handtók mennina tvo og stúlkuna.  Drengurinn var með töluverða áverka og var fluttur beint á slysadeild.

Gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur rann út í dag en eldri maðurinn hefur hafið afplánun vararefsingar. Lögreglan hefur farið fram á áframhaldandi gæslu yfir yngri manninum. Sá hefur játað sök að hluta en eldri maðurinn ber við minnisleysi um atburði. Mennirnir hafa báðir ítrekað komið við sögu lögreglu en þolandinn á litla sögu hjá lögreglu.