28 Ágúst 2017 14:36

72 voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku. Flestir eða 25 í vesturhluta umdæmisins en 16 voru kærðir fyrir að aka of hratt á þjóðvegi 1 í Öræfum.  Þá voru 12 kærðir fyrir að aka of hratt í nágreni starfstöðvar lögreglu á Hvolsvelli.

3 voru kærðir fyrir að flytja of þungan farm á bifreiðum sínum. 2 með allt að 10% umfram þunga en einn með meira en 30% umfram þunga.  Sá var við vegavinnu og kvaðst einungis vera að aka stutta leið úr námu.  Höfð voru afskipti af ökumanni pallbifreiðar með kerru í eftirdragi á leið sinni úr byggingarvöruverslun á Selfossi. Á kerru sem bíllinn dró var timburbúnt, svo afturþungt að þegar ýtt var á endann á því lyftist bifreiðin að aftan.   Ökumaðurinn „ætlaði skamma vegalengd“ með timbrið en var gert að gera úrbætur áður en lengra var haldið.   Það er fremur sjaldgæft að fundið sé að því að það vanti hleðslu á ás bifreiða.

3 voru kærðir vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum fíkniefna við akstur bifreiða sinna. Einn þeirra var einnig grunaður um að vera undir áhrifum áfengis.  Annar mældist á 133 km/klst hraða á Sandskeiði  þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst og viðurkenndi sá að hafa neytt kókaíns fyrir aksturinn.   2 aðrir voru kærðir fyrir meinta ölvun við akstur, annar þeirra erlendur ferðamaður sem lauk máli sínu með sektargreiðslu og sviptingu ökuréttar daginn eftir að málið kom upp.

Í þrígang var grenslast fyrir um ferðamenn sem farið höfðu af leið.   Allir komust heilir til byggða, ýmist með aðstoð lögreglu, björgunarsveita eða landeiganda.  Einn var á Fimmvörðuhálsi og hafði komið sér í sjálfheldu þar.  Björgunarsveit aðstoðaði hann.  Annar fór af leið á Langjökli en kom sér sjálf í húsaskjól og gerði vart við sig og var sóttur af lögreglu.  Þriðji var villtur í myrkri á Sólheimasandi og var aðstoðaður í bíl af landeiganda þar.

Stúlka slasaðist á hönd þegar hún lenti með hana í ullartætara á bæ í Rangárvallasýslu. Hún var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar.  Erlendur ferðamaður er talinn mjaðmargrindarbrotinn eftir fall við Fjallsárlón og annar slíkur féll við Jökulsárlón og slasaðist.  Þá slösuðust hjón þegar sleði sem þau óku um Sólhemajökul valt.   Talð er að bæði hafi handleggsbrotnað við slysið.