22 Mars 2022 12:01

Þrír ökumenn sem lögregla hafði afskipti af í liðinni viku reyndust ölvaðir.   Einn þeirra stöðvaður í Hveragerði, annar á Skeiða- og Hrunamannavegi og sá þriðji hafði ekið út af Suðurlandsvegi í Rangárþingi ytra án þess þó að slasast.

15 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt,  af þeim 4 sem reyndust á 130 km/klst hraða eða meira á vegi þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst.  Einn ökumaður var kærður fyrir að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur bifreiðar.

13 umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku.  Af þeim vor 10 án meiðsla en í 3  þeirra urðu slys á fólki.   Þann 15. mars varð árekstur tveggja bifreiða við gatnamót Þrengslavegar og afleggjara að Raufarhólshelli.   Meiðsl minniháttar.    Þann 17. mars valt bifreið á Oddgeirshólavegi og hafnaði úti í skurði við veginn.   Tvær stúlkur í bílnum og þær fluttar til frekari skoðunar á heilbrigðisstofnun.   Meiðsl ekki talin alvarleg.   Þann 18. mars valt bifreið á Suðurstrandavegi skammt frá Selvogi .   5 í bílnum,  komust allir út á fæti en fluttir til skoðunar á heilbrigðisstofnun.

Ferðamaður öklabrotnaði á göngu í Fremri Veðurárdal í Sveitarfélaginu Hornafirði þann 19. mars.   Var á leið í skoðun á íshelli og þurfti aðstoð björgunarsveita við að búa um manninn og koma í sjúkrabíl sem flutti hann til Hafnar.   Beið þar af sér veður og fluttur til Reykjavíkur næsta dag þegar fært var fyrir flug.

Kannabisræktun fannst í íbúð í fjölbýlishúsi á Selfossi þann 15. mars s.l.   158 plöntur og búnaður til ræktunar haldlagt og fært á stöð.  2 menn handteknir og yfirheyrðir en látnir lausir að því loknu.   Málið áfram til rannsóknar.

Eitt mál varðandi heimilisofbeldi kært og annað er varðar kynferðisbrot.   Bæði til áframhaldandi rannsóknar og frekari upplýsingar ekki gefnar um þau.

Þrjú mál er varða umsókn um alþjóðlega vernd komu inn á borð lögreglu en þar er í öllum tilfellum um að ræða flóttamenn frá Úkrainu.   Flest þessara mála koma eðli málsins samkvæmt upp á flugvellinum í Keflavík en hinsvegar er eitthvað um að fólk hefur komið að utan og fengið inni hjá skyldfólki á Íslandi og sækir síðan um alþjóðlega vernd á næstu lögreglustöð.