9 Apríl 2018 13:31

Tveir ökumenn voru stöðvaðir í vikunni sem leið vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana og fíkniefna.

Þá liggja fyrir fimm aðrar kærur vegna brota á umferðarlögum m.a. vanræksla á notkun öryggisbelta, notkun farsíma við akstur án handfrjáls búnaðar og akstur án réttinda.

Rétt er að minna á að á vef Samgöngustofu er að finna nýja reglugerð um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum sem tekur gildi þann 1. maí nk. https://www.samgongustofa.is/media/log-og-reglur-i-umferdarmalum/B_nr_288_2018.pdf