17 Mars 2010 12:00

Brot 14 ökumanna voru mynduð á Arnarhrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhraun í vesturátt, að Sléttahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 41 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Arnarhrauni var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Arnarhrauni en þá óku hlutfallslega fleiri, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 35%.