7 Mars 2025 10:50

Brot 100 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í austurátt, að Salavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 354 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.