3 Júlí 2025 15:07

Brot 76 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Sólarsölum. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 300 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.