11 Febrúar 2022 08:20

Brot 66 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, við Salaveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 331 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, snjór og krap var á með hraðamælingunni stóð.