4 Apríl 2018 14:02

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Ásabraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í norðurátt, við Birkiás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Ásabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.