31 Mars 2010 12:00

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Ásabraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í vesturátt, við Birkiás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 26 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 62%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 52 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 66.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Ásabraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Ásabraut en þá ók líka meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan heldur engu betri, eða 65%.