6 Apríl 2016 13:01

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Ásabraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í norðurátt, við Birkiás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Ásabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.