14 Apríl 2009 12:00

Fjörutíu og tveir voru staðnir að hraðakstri á Bæjarbraut í Garðabæ á miðvikudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á miðvikudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 42 ökumanna mynduð á Bæjarbraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, að Karlabraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því óku 38% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tólf óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 85.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Bæjarbraut og þá var niðurstaðan svipuð. Þá óku 40% of hratt eða yfir afskiptahraða og meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 67 km/klst.