5 Mars 2025 15:14
Brot 13 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í suðurátt, að Fjölnisvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 98 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.
Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.