30 Október 2009 12:00

Brot 76 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í norðurátt, að Egilsgötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 197 ökutæki þessa akstursleið og því ók vel yfir þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59. 

Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg, en við götuna er Austurbæjarskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.