5 Febrúar 2025 08:59
Brot 14 ökumanna voru mynduð á Borgavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Borgaveg í austurátt, að Víkurvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 181 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 52 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.
Vöktun lögreglunnar á Borgavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.