1 Apríl 2025 13:51
Brot 98 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 27. mars til mánudagsins 31. mars. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á fjórum sólarhringum fóru 24.365 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.