24 Mars 2011 12:00

Brot 70 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, að Litluhlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 501 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sex óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.

Á umræddum vegarkafla hefur verið nokkuð um umferðaróhöpp.