6 Febrúar 2020 15:11

Brot 77 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, á móts við Veðurstofu Íslands. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 722 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sex óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 91.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.