5 September 2024 12:34

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, á móts við Kópavogsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 257 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.