30 Júní 2025 14:40

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Elliðavatnsvegi (Flóttamannaleið) í Garðabæ í dag. Fylgst var með  ökutækjum sem var ekið Elliðavatnsveg í vesturátt, við Vífilsstaðavatn. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 151 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Elliðavatnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.