18 Október 2018 13:46

Brot 115 ökumanna voru mynduð á Fífuhvammsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fífuhvammsveg í vesturátt, að Hlíðardalsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 360 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Fífuhvammsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.