15 Október 2024 12:10

Brot 31 ökumanns var myndað á Flókagötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Flókagötu í vesturátt, við Kjarvalsstaði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 81 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Flókagötu er liður í umferðareftirliti hennar  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.