3 Apríl 2025 08:32

Brot 82 ökumanna voru mynduð á Flókagötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Flókagötu í austurátt, við Kjarvalsstaði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 208 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar á Flókagötu er liður í umferðareftirliti hennar  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.